SARLOG stendur fyrir Search And Rescue logging, eða dagbókarkerfi viðbragðsaðilans.
Skráningarkerfi þurfa að vera einföld og fljótleg í notkun. Verkefni verður að vera hægt að skrá á nokkrum sekúndum. Það tekur aðeins 60sek að skrá verkefni. SARLOG tekur akstur á rauntíma úr Sitewatch.
SARLOG varð til sem tilraun til að gera skráningarkerfi einfalt og fljótlegt í notkun. Kerfið hefur verið í notkum í rúmlega 6 ár hjá Björgunarfélagi Árborgar þar sem yfir 4000 skráningar og um 100000 tímar hafa verið skráðir.
Nú þegar eru 13 björgunarsveitir að nota SARLOG
Stofnaðu verkefni, skráðu tímafjölda, tögg, búnað og björgunarmenn. Svo einfalt er það SARLOG sér um að sækja aksturinn úr Sitewatch
Forritað af viðbragðsaðila fyrir viðbragðsaðila.
Vertu með yfirsýn yfir tímana á einum stað, hvort sem það sé björgunarmenn eða tækin.
Bæta við myndum? Skannaðu QR kóðan á verkefninu og bættu við myndum úr símanum.
Ef búnaðurinn er til í Sitewatch þá vistast ferlar sjálfkrafa, hvort sem það er bifreið, dróni eða kerra
Það er einfalt að halda utan um notkun og akstur í SARLOG